Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.
Textastærð
Þessi frásögn er höfð eftir skólapiltum úr Múlasýslu árið 1628, suður í Skálholti og er hér að mestu óbreytt. Henni lýkur er Tyrkir halda á brott austur með landinu. Smá tilfærslur og útskýringar eru gerðar til að laga frásögnina og stafsetning færð nær nú tímastafsetningu, en rithátturinn er látinn halda sér. „Fyrst komu þeir að landi á tveim skipum austur hjá Hvalnesi í lóni og fóru í land á fjórum bátum. En þar var enginn maður heima á þeim bæ, heldur var þar allt í seli sem var í einum dal eður dalverpi ekki langt frá sjó. Þar ræntu þeir öllu sem fénætt var utan stokks og innan, svo þar var ei eftir nema sex hundruð. Þeir klufu í sundur kistur og hurðir mannsins og mörg hans lömb sem þeir gátu náð, en sumir af þeim gengu austur með sjónum og leituðu að mönnunum. En þeir sem fóru í þá átt sem selið var, fundu það ekki en gengu þá nærri því, en þar var lítil hæð á milli og sneru þeir aftur að sínum bátum. En í því sama bili sem þeir vildu leggja frá landi kom maðurinn ríðandi frá selinu og ætlaði að forvitnast um hvað þar gerðist, því hann sá skipin en vissi ekki hvaða skip það voru. Og sem hann var kominn nærri bænum, sá hann þessa fjóra báta koma á flot og þann fimmta, sem hann átti og meinti hann það mundi vera engelskir og kallaði til þeirra og spurði því þeir stæli frá íslensku fólki sem þeim væri saklaust. En þá þeir heyrðu þetta, illskuðust þeir og vildu snúa aftur að landi, en þeir gátu það ekki því þá kom mikið brim við landið, svo fyllti undir þeim svo skolaði út þó lítið væri, einum litarpakka og lambi. Svo lögðu þeir þar frá til skipa sinna, en maðurinn tók það sem upp rak fyrir þeim. Síðan sigldu þeir austur fyrir á fimmtudagsnóttina, en á föstu dagsmorguninn í afturbirting sáu menn tvö skip hjá Papey.
Kambshjáleiga á Hálsströnd við Hamarsfjörð. Mynd úr safni Ingimars Sveinssonar.
Þá lögðu þau á Berufjörð og höfðu góðan byr. Varð á þeirri leið einn bátur danskur úr Djúpavogi; þar voru á fjórir menn er lágu við línur. Þann bát tóku þeir og sigldu svo eftir vanalegri siglingu engelskra inn á fjörðinn og þá þeir komu jafngegnt Berunesi köstuðu þeir akkerum og það var nærri um sólaruppkomu.
Á þeirri sömu stundu fóru þeir á þremur bátum yfir um fjörðinn að kaupstaðnum, sem heitir Djúpivogur og liggur gegnt yfir frá Berunesi fyrir sunnan fjörðinn. Einn báturinn lagði strax að kaupskipinu, en hinir tveir fóru á sína síðu hafnarinnar hvor þeirra og slógu svo hring um búðirnar og komu óforvarandis upp á danska, þar [sem] þeir sváfu allir í sængum sínum, bæði þeir sem í skipinu voru og svo í landi. Svo tóku þeir þar alls fimmtán menn með einum íslenskum, sem hjá þeim var, svo enginn komst undan. Þeir bundu þá alla og fluttu svo á tveim bátum til skipanna. Eftir það gengu þrjátíu og fimm af þessum ræningjum með vopnum og verjum, hrópum og hrinum, svo sem grenjandi león, að þeim bæ sem heitir á Búlandsnesi sem stendur næst Djúpavogi og tóku manninn sem þar bjó, Guttorm Hallsson, með hans sex heimilismönnum og pilt, þar með þrjár kerlingar og eina stúlku, sem og einninn sex fátæka, sem þar voru komnir úr öðrum sveitum að leita sér bjargar.
Þeir tóku og hjónin á Búlandsnesshjáleigu og þeir bundu hendur á karlmönnum og létu tvo sína menn reka það að Djúpavogi og fluttu út á danska kaupfarið, en hinir þrjátíu og þrír gengu heim að staðnum sem heitir undir Hálsi. Þar bjó sá prestur
Berufjarðarströnd, fjallið Stöng fyrir miðju. Ljósmynd: Alda Snæbjörnsdóttir.
sem hét síra Jón Þorvarðsson, en þeir fundu þar öngvan mann heima; því leituðu þeir þangað til þeir fundu selið frá staðnum. Þar fundu þeir prestinn og hans kvinnu Katrínu Þorláksdóttur með þeirra sex heimilismönnum og þar að auki þrjá menn frá Hálshjáleigu. Þetta fólk ráku þeir undan sér gangandi með öllum Berufirði allt að þeim stað, sem þar stendur inn í fjarðarbotninum og heitir Berufjörður og var þá presturinn og hans kvinna þreytt og uppgefin af gangi.“ Þegar Tyrkir nálguðust selið á Búlandsdal sem áður segir, varð smalapilturinn Jón Ásgrímsson var við þá og hljóp undan þeim sem mest hann mátti, inn með firðinum að bænum Berufirði við fjarðarbotn. Þar aðvaraði hann heimilisfólkið og flúðu þaðan allir ásamt smalanum yfir Berufjarðarskarð og upp í Breiðdal. Bóndinn í Berufirði Magnús Þórðarson var ekki heima á þessum tíma. Hann var ásamt vinnumanni og sonum sínum tveimur uppkomnum, við sjósókn út á Berufjarðarströnd. Náðust þeir upp við Steinketil, ysta tindinn sunnanvert við Krossdalinn. „Þá létu þeir prestinn og hans kvinnu bíða þar [í Berufirði] og hina sem uppgefnir voru, en aðra ráku þeir út eftir Berufjarðarströnd og til Beruness. En þegar bátarnir komu úr kaupstaðnum með þá Dönsku sem þeir tóku úr Djúpavogi, létu þeir þá upp á sín skip, en fóru á tveimur bátum norður fyrir fjörðinn að Berunesi. En Bjarni Jónsson silfursmiður sem þar bjó, flýði og allt hans heimafólk og nokkrir menn með honum af öðrum bæjum úr þeirri kirkjusókn, fyrst upp í einn dal, en sumir meintu að þeir mundu vera friðsamir og vildu ekki flýja. En strax sem ræningjarnir voru komnir á land, skiptust þeir í flokka og þustu sumir heim í staðinn Berunes, en sumir inn eftir ströndinni, sumir út með sjónum, en sumir upp á fjöllin. En tveir menn af fólki Bjarna Jónssonar riðu frá honum og hans fólki, þeir riðu báðir góðum hestum og fóru til njósnar að vita hvernig til gengi. Þá var þoka mikil ofan í miðjar hlíðar. Þeir riðu aftur sama veg sem þeir riðu upp eftir. En þá þeir komu úr dalnum, komu á móti þeim átta menn sem þeir meintu vera íslenska, því þeir ráku sauði undan sér, því voru þeir ugglausir og hugsuðu að hafa sanna fregn af þeim. En þá þeir komu nú nær, sáu þeir að hinir voru vopnaðir og stóðu þá hvorutveggju við og horfðu svo hvorir á aðra. En þegar þeir íslensku meintu það ófriðarmenn, sneru þeir aftur sama veg, en það var ekki utan einn ræningi og íslenskir menn sjö, sem hann rak undan sér og þar var með Magnús Þórðarson frá Berufirði og hans synir. En ræninginn dró þá uppi, en náði þeim þó ekki því hann mæddist fyrri en hestarnir. Hann var og vopnaður. Svo komu þeir íslensku til síns fólks og svo flúði það allt norður í Breiðdal. En hinir ræningjarnir sem inn eftir sveitinni fóru, tóku á Þiljuvöllum þrjá menn, en í Gautavík níu menn, frá Skála tíu menn, frá Kelduskógum hjónin og vinnukonuna og pilt; item fimm börnin frá Berufirði... Á Berunesi drápu þeir tvær kerlingar, enn á næsta bæ var allt fólk flúið; hét á Karlstöðum, nema einn förupiltur, hver eð lá sjúkur. Hann skáru þeir á háls og báða handleggina frá síðunum. Í hjáleigunni tóku þeir manninn með tveim börnum og þriðja barnið með vöggunni. Frá Krossi, bóndann með tveimur vinnumönnum og úr Gerði hjónin með einu barni. Frá Krossgerði hjónin bæði og einn pilt frá Borg; einn mann frá Sjóarborg, hjónin bæði frá Berunesi, menn frá Núpi þrjá og úr Papey tvo pilta. Allt þetta fólk fluttu þeir til skips á þeim sama degi. Þar eftir sendu þeir einn bát inn að Berufirði eftir prestinum sira Jóni Þorvarðssyni og hans kvinnu og öðrum, sem þar eftir voru. En þá þeir voru búnir að flytja fólkið til skips, nærri um miðdegi, tóku þeir til að ræna á bæjunum báðum megin fjarðarins og voru að því allt til kvölds. Það var á föstudaginn. En um nóttina þar eftir, gengu þeir þrjátíu og fimm að tölu, lengra en þeir höfðu áður gengið í Hálssókn suður á veginn, allt til þess bæjar, sem heitir Hamar. Hann stendur nærri hálfa þingmannaleið frá kaupstaðnum Djúpavogi. Maðurinn sem þar bjó á Hamri, hafði komið undan öllu því fé er hann átti innanstokks og falið það, en látið reka sinn fénað langt í burtu. En hann vildi ekki láta fólkið flýja um nóttina, heldur setti til tvo menn að vaka og skipaði þeiın að taka vel vara á og segja strax til, ef nokkuð heyrði til þessara ræningja. Svo lagði fólkið sig til svefns um nótrina. En nær um sólaruppkomu komu þessir óguðlegu blóðhundar þangað og tveir af þeim brutust strax inn í skálann þar sem fólkið svaf. Þeir höfðu langa rafira sér í höndum og slógu á sængurstokkana og á fólkið með miklu kalli og hrópi og skipuðu því á fætur, en lofuðu því varla að klæða sig og ráku það svo í bænhúsið. Síðan leituðu þeir um öll hús með logandi ljósi og fundu þeir þá tvo, sem svikist höfðu um að vaka; þeir lágu í eldaskálanum. Ræningjarnir leiddu þá út til hinna og bundu allt karlmannafólkið, svo sem þeir voru vanir að gera. Þeir íslensku voru að tölu þrettán, en konan mannsins sem þar bjó, var mjög veik og vanınáttug, svo hún gat ei gengið í burt með hinu fólkinu. Hana slógu þeir með byssu undir vangann svo hún hné niður; þá spyrndu þeir við henni fótunum og meintu að hún mundi dauð og skildu svo við hana, en ráku allt hitt til skips. Á þeirri leið komu þeir til Háls og tóku þar messuklæðin og kaleikinn, svo sem þeir höfðu áður gert á hinum tveim kirkjunum, á Berunesi og Berufirði, og þeir skemmdu bækurnar í Hálskirkju og hjuggu í sundur altarið og köstuðu því fram á gólf. Þetta var á laugardaginn, sem þetta fólk frá Hamri var komið til skips, fóru þeir enn aftur yfir um fjörðinn að Berunesi og fóru svo norður yfir höllin til þess þeir komu í Breiðdal. Þeir voru átta í hóp og komu fyrst á þann bæ, sem heitir Ós. Þar fundu þeir þrjá karlmenn og bundu þá bæði á höndum og fótum. Það var Gísli Þórarinsson og hans sonur og Ásmundur Hermannsson, og þeir settu tvo vopnlausa að geyma þá á meðan hinir hlupu eftir mönnunum yfir um ána frá Eydölum, sem áttu að koma undan nokkrum kistum síra Höskuldar. En þegar þeir voru í burt farnir, flýði Jón frá Streiti með sitt fólk, en hann vissi ekki af neinum ófriði í Breiðdal. En þá þessir tveir vaktarar sáu þetta fólk, flýðu þeir upp í fjallið, en Jón á Streiti leysti þessa menn og svo Aýðu þeir með honum inn eftir Breiðdalnum og upp í Hérað. En þeir menn sem með kisturnar fóru, yfirgáfu þær og flýðu sjálfir. Úr þeim kistum tóku ræningjarnir nærri til þrjátíu hundraða sem var klæði og silfur, en þeir klufu kisturnar í sundur; en aldrei fóru þeir til Eydala, því þeim sýndist það vera klettar sem staðurinn var. En þeir leituðu víða um Breiðdalinn að mönnunum og fundu þá ekki, en þeir ræntu á bæjunum sem þeir komu og sneru svo aftur til skipanna. Á sunnudaginn fóru þeir enn aftur inn í Breiðdal og vildu vita hvort fólkið vitjaði ei aftur heim til bæjanna og lágu í leyndum hér og hvar. En síra Höskuldur Einarsson hafði tilsett átta menn á njósn að forvitnast um, hvað þeir sæi nýlegt um ræningjana og þeir ætluðu að ríða heim til Eydala, en áður en þeir komust heim til staðarins urðu í vegi fyrir þeim átta ræningjar, sem stukku upp úr einni lág og tóku strax til að elta þá. Og þá þeir höfðu elt þá nokkra stund náðu þeir einum, en á meðan þeir bundu hann, þá riðu hinir þeim [1] hvarf og komust svo undan. Á þeim sama degi var einn maður úr Héraði kominn að sækja húsavið á einum hesti norður í Breiðdal. Hann reið góðum hesti; en þá hann sá til ræningjanna, hvar þeir fóru utan eftir bökkunum, lagði hann sinn reiðing á góða hestinn, sem hann reið og lét hann bera klyfjarnar, en reið hinum klárnum sem latari var. En þá ræningjarnir nálguðust hann, þá sleppti hann burðarhestinum, en tók til að berja fram lata klárinn
Séð frá Streitishvarfi yfir Breiðdalsvík, Súlur til hægri. Ljósmynd: Alda Snæbjörnsdóttir.
sem hann reið; og þá lítil stund var liðin drógu þeir hann uppi og tóku hann. Þann sama dag ferðuðust þeir allt inn að Flögu í Breiðdal, hver að stendur hart nær innst í þeirri sveit. Það er að vegalengd hálf önnur þingmannaleið. En þá þeir fóru aftur til sinna skipa, fundu þeir einn gamlan karl nærri áttræðan. Hann drápu þeir. Náðu líka einum pilti á þeirri leið. Þessa þrjá menn tóku þeir úr Breiðdal, en slógu þann fjórða í hel. En [er] þeir komu til Núps á Berufjarðarströnd með þessa þrjá menn, settu þeir tvo menn til að geyma þá þar heima við bæinn, en hinir fóru að leita eftir því sem falið hafði verið. Þá fóru þessir tveir vaktarar inn í bæinn, en á meðan þeir dvöldu í bænum hljóp einn þeirra íslensku upp fyrir bæinn, - en hendurnar á honum voru bundnar aftur á bakið. En þá þeir ræningjarnir sem við sjóinn voru, sáu hvar hann hljóp upp eftir, tóku þeir til að elta hann. En þá hann var kominn upp undir fjallið í þokuna, duttu ofan um hann buxurnar og gat hann þá ekki annað til gert, en kasta sér niður og befala sig guði. En þá þeir gengu í kring þar sem hann lá og leituðu að honum með miklum hrinum og óargalátum, því þeir vissu að hann var nærri þeim. Þó fundu þeir hann ekki og sneru svo aftur til þess manns, sem kominn var úr Héraði og börðu hann og hinn manninn, sem þeir tóku af njósnarmönnum síra Höskuldar og höfðu þá svo til skips og líka ræntu þeir á leiðinni. Þetta höfðust þeir að á sunnudaginn, en pilturinn komst undan í böndunum. En á mánudaginn fóru þeir inn aftur að Berufirði og kveiktu þar tvo elda í kirkjunni og meina menn þeir steikt hafi þar tvö lömb og hænsni, því gærurnar lágu eftir á hlaðinu
Prédikunarstóll Berufjarðarkirkju frá 1690. Ljósmynd: Alda Snæbjörnsdóttir. Stóllinn er yngri en atburðirnir 1627.
og nokkuð af hænsnunum fannst i annarri öskunni. Þeir hjuggu og ofan bríkina sem var yfir altarinu, svo hún brotnaði í tvo parta. Síðan fóru þeir þaðan út eftir ströndinni. Þeir komu til þess bæjar sem heitir Gautavík, þá ætluðu þeir að brenna bæinn, en það tókst eigi því eldurinn var nýkviknaður þá þeir fóru í burtu, svo þar brann ekki nema grasið á húsunum og viðarkösturinn. Eftir það komu þeir til Beruness og brutu þilið undan kórnum, en köstuðu altarinu fram á gólf, ræntu öllu hans góssi, sem þeir náðu, sem var til hundrað hundraða, þar með þrettán naut og áttatíu fjár með lömbum. Á þessum sama degi tóku þeir kaupfarið danskra og tóku úr því allt góssið sem þeir vildu hafa og skutu svo skipið í sjó. En það mjöl og járn sem í land var komið vildu þeir ekki, heldur hjuggu þeir botnana úr tunnurnum, en svigana af sumum, svo spilltist niður til helftar það sem eftir var; svo fóru þeir með járn og salt. Þetta höfðust þeir að á mánudaginn, en þriðjudaginn ætluðu þeir að sigla í burtu, en þeir komust ekki lengra en á móts við Kross, því að logn var. Þar lágu þeir tvo daga. Síðan komust þeir út og sigldu fyrir norðurfjörðurnar. Á þeirri leið andaðist ein kona, sem hét Vilborg, frá Gautavík og skipuðu þeir íslenskum að búa hana til og kasta henni svo út." (Tyrkjaránið á Íslandi 1627, 1906-1909:6-16). Hét áður: - Um höndlan ræningjanna fyrir austan Anno 1627.