Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.
Textastærð
Í Hamarsdal heita Skriður sunnan megin ár skammt innan við gömlu beitarhúsin að Fossbrekkum. Þorsteinsgjót heitir þar litlu innar. Munnmæli herma „að vinnumaður á Hamri, Þorsteinn að nafni, hafi náð í hest og þeyst inn með Hamarsá. Tyrkirnir eltu hann að hyl inn undir Hamarsseli. Þar sundreið Þorsteinn hylinn, en Tyrkir stóðu eftir á eyrinni. Köstuðu þeir öxi á eftir honum og heitir hylurinn síðan Axarhylur (Einnig Axarlón eða Skriðulón). En Þorsteinn slapp ómeiddur og fór upp gjót eina sem síðan heitir Þorsteinsgjót. Komst hann þannig upp á Snædalsöxl og var borgið." (Ingimar Sveinsson, 1989:28).