Aftur í verkefniðisland comics

Munnmæla-/sagnafrásögn

Drengur bjargar fólki frá ræningjum

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

Sögumaður okkar í þessari frásögn er Ólafur Thorlacius er var læknir á Djúpavogi. „Árið 1627, þegar Tyrkir rændu austanlands og sunnan, komu þeir einnig á Berufjarðarströnd og gerðu þar mikil spjöll. Þegar þeir höfðu látið þar greipar sópa, lögðu þeir af stað með níu fanga sem þeir tóku í Beruneshreppi." Þeir fóru inn allan Krossdalinn sem er talsvert löng leið. Völdu þeir hana vegna þess að skip þeirra kolsvart að lit, var á Langatangabólinu að sunnanverðu á Breiðdalsvík. Þegar þeir komu í dalbotninn inn undir Fagradalsskarði þar sem Krossá á upptök sín, kom á þá dimm þoka.. „Þá villtust þeir og gerðust harla smeykir. Tóku þeir það ráð að binda fangana og skilja þá síðan eftir í böndum. Meðal fanganna var þriggja eða fjögurra ára gamall drengur. Hann bundu þeir ekki, hafa sennilega talið að þess þyrfti ekki með. Móðir drengsins var meðal fanganna og hafði hún laumað hnífi að syni sínum áður en farið var með hana að heiman og sagt honum að geyma hann í skó sínum. Þegar ræningjarnir voru fyrir æðistundu horfnir út í þokuna, fór drengurinn að reyna að skera böndin af móður sinni. Þetta tókst. Hún skar síðan böndin af hinu fólkinu og bjargaðist það allt úr þeim voða er það var í. - Herma sagnir, að þessi drengur hafi heitið Bessi og orðið kynsæll maður á Austurlandi." (Stefán Jónsson, 1964:14).

Aftur í verkefnið