Aftur í verkefniðisland comics

Sögn í tilvitnaðri heimild

Sögn af Guttormi Hallssyni

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

„Oft er þess getið að Íslendingar urðu fyrir óspektum útlendra manna af sjó. En minnisstæðast er rán Algiersbúa (Tyrkja). Var þá víkingaþjóð vorri illa aftur farið, enda var hún alveg óundirbúin. Harmkvælalega er og frá sagt og sleppt úr þeim fáu hreystibrögðum er sýnd voru og sem munnmælin hafa reynt að geyma og ef til vill skreyta. Þegar Tyrkir komu til Austurlands 1627 bjó á Búlandsnesi við Djúpavog, Guttormur sonur séra Halls Hallvarðssonar og Seselíu dóttur séra Einars í Heydölum ... Þegar Tyrkir komu í Berufjörð var Guttormur að gera upp stekk á Berunesi fyrir [móður]systur sína og mann hennar, Bjarna gullsmið. Komu þar að honum átta til tíu ræningjar með ófriði. Hann varðist þeim með rekunni, rýmdi þeim loks og slapp yfir um í Búlandsnes, heim. Hafði hann meitt ræningja og hugðu þeir á hefndir, sem eigi þurfti til; enda æddu þeir þrjátíu og fimm með alvæpni og ópi inn í Búlandsnes (6. júlí) og fengu tekið Guttorm þar, þrjár vinnustúlkur, þrjár kerlingar og einn pilt. Bundu þeir hendur Eiríks og piltsins á bak aftur og ráku þau svo öll [út] á Djúpavog og fluttu til Algier með mörgum öðrum. Guttormur þoldi vel alla hrakninga, því hann var hraustmenni sem fleiri þeir frændur. Hann var einn þeirra sem leystur var út af stjórninni og var þá orðinn auðugur. Enda segja svo sagnir að hann væri myrtur til fjár á leiðinni yfir hafið." (Sigfús Sigfússon XII, 1954:9-10).

Aftur í verkefnið