Aftur í verkefniðisland comics

Þjóðsaga í tilvitnaðri heimild

Álfheiðarskúti

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

„Þess er getið í Tyrkjaránssögu að Algiersmenn hafi rænt fólki á Búlandsnesi í Suður-Múlasýslu. Upp frá bænum í neðsta hjalla er hellisskúti sem nefnist Álfheiðarskúti. Nafn það er þannig orðið til, að þangað flúði vinnukona frá Búlandsnesi undan ræningjunum og hét hún Álfheiður. Þeir eltu hana. En þótt mikið sé gortað af brattgengi þeirra í 'Tyrkjaránssögu, þá er svo sagt að enginn þeirra áræddi að komast í skútann um stund, uns einn þeirra varð til þess og komst nærri. Álfheiður varði og hrökk hann fram af til dauðs. Þá urðu hinir hræddir og hættu við. Var Álfheiður þar þangað til ræningjarnir voru farnir af Djúpavogi og hafði síðan ekkert að óttast. Skútinn er hömrum varður (á) alla vegu og varla fært í hann að komast nema fyrir frækna flugamenn." (SS IX, 1950:100).

Aftur í verkefnið