Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.
Textastærð
Á öðrum stað segir á eilítið annan hátt frá því er Tyrkir rændu á Berunesi. „Húsfreyjan á Berunesi, Sigríður að nafni er sögð hafa átt mikið silfur. Þegar Tyrkir nálguðust flúði fólkið af bænum, en eftir varð örvasa kona sem sett var milli þils og
Séð frá Steinaborg yfir Berufjörð að Djúpavogi. Ljósmynd: Alda Snæbjörnsdóttir.
veggjar til að hún fyndist ekki. Í óðagotinu þegar fólkið yfirgaf bæinn gleymdist silfrið og Tyrkir fundu það. Heyrði gamla konan sem í felum var, þegar ræningjarnir hrærðu í silfri húsfreyju. Varð henni þá að orði: - Svona fór þá silfrið hennar Siggu minnar. Þessi orð sem sögð voru stundarhátt kostuðu gömlu konuna lífið og urðu síðan orðtæki." (Vilhjálmur Hjálmarsson, 1983:41). Í Árbók FÍ. 2002 (s. 156) segir frá annarri gamalli konu frá Berunesi sem átti að hafa falið sig í helli utan við Lambaleitislæk, skammt innan við Berunes. Það fór betur fyrir henni en þeirri sem í veggnum duldist og slapp hún fyrir vikið við herleiðingu Tyrkjans. Heitir þar síðan Kerlingarhellir.