Aftur í verkefniðisland comics

Örnefnasögn með fyrirvara safnarans

Ræningjarák og Postillugil

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

Í örnefnaskrá Beruness segir frá gjótu í klettunum skammt innan við landamærin milli Karlsstaða og Beruness, sem nefnist Staðarhvammsgjót. „Úr gjótinni liggur rák inn klettana, Ræningjarák er hún kölluð. Nafnið fékk hún að því er sagan segir í Tyrkjaráninu er ræningjarnir fóru um þessa rák, er þeir eltu Berunesfólkið áleiðis upp í fjallið. Það fylgir sögunni að heimamaður hafði tekið með sér postillu á flóttanum undan ræningjunum og til þess að sleppa frá þeim stökk hann undan þeim yfir klettagil en missti þá bókina ofan í gilið." (Ármann Halldórsson III, 1976:385). Á öðrum stað segir að þetta hafi verið Vídalínpostilla sem maðurinn greip með sér á flóttanum í von um vernd guðs, fyrir tilstilli hinnar helgu bókar, en eins og í fyrri sögunni fór hún í gilið á flóttanum. Sá galli er þó á þeirri frásögn að höfundurinn Jón biskup Vídalín var ekki fæddur þegar Tyrkirnir ræntu í Berufirði og af þeim sökum ekki búinn að skrifa postillu sína. En í gilið fór bókin og hefur því að öllum líkindum verið einhver annar kraftmikill ritningalestur. Ef til vill tafði það fyrir ránsmönnunum, eða þeir töldu það óheillamerki er þeir sáu guðsorðabókina fljúga niður í gilið og tætast í sundur á leiðinni niður klettana. Gilið heitir síðan Postillugil.

Aftur í verkefnið