Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.
Textastærð
„Á Berunesi bjó Bjarni silfursmiður Jónsson, tengdasonur séra Einars Sigurðssonar í Eydölum, roskinn maður. Hann hafði séð öðrum betur hvað víkingarnir höfðust að, þar eð skipin lágu á firðinum framan við bæ hans. Þótti honum óvarlegt að verða á vegi þeirra og forðaði sér því með fólk sitt flest og nokkra menn aðra upp á dal einn í fjallinu þar fyrir ofan upp í Krossdal. Var þá þoka hið efra og allt niður í miðjar hlíðar og kunnugum mönnum gott að leynast." (Jón Helgason, 1983:34). Í Ættum Austfirðinga III, nr. 6224 segir frá Sigríði Einarsdóttur húsfrú á Berunesi. Hún var fædd um 1580 og hét fyrri maður hennar Bjarni Jónsson fæddur 1565, dáinn fyrir 1648. Hann var bóndi og silfursmiður á Berunesi. Sigríður giftist aftur eftir lát Bjarna, Birni Hermannssyni og bjuggu þau á Berunesi. Hún er síðan dáin fyrir 1657, er Björn býr þar einn. Sigríður húsfreyja á Berunesi var geðveik um tíma eins og Anna systir hennar. Þær voru systur Odds biskups í Skálholti. Í sögum af Tyrkjaráninu eru tvær kerlingar skildar eftir í bænum á Berunesi þegar fólkið flýr til fjalls. En heldur fannst þessum suðrænu mannaveiðurum rýr fengurinn í Berunesbænum þegar þeir kvöddu þar dyra. Það eina sem þeir höfðu upp úr krafsinu voru tvær gamlar og hrumar kvenpersónur. Þóttu þeim kerlur síst söluvænar á markaðstorgum Algeirsborgar og drápu þær á staðnum.