Aftur í verkefniðisland comics

Sögn og ættfræði/jarðabréf

Hermann á Berunesi

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

Er Tyrkir fóru ránsferð sína 1627 komu þeir að Eyjum í Breiðdal fyrir miðjan morgun. „Náðu þeir öllu fólki heima, tóku það allt og bundu, nema dreng einn fjögurra ára er Hermann hét. Síðan fóru þeir burtu að leita fleiri bæja. Heiðmyrkur var á mikið (þoka í neðra en bjart á lofti) .' Þegar þeir voru farnir, sagði móðir Hermanns við hann: - Hefirðu ekki busann (busi=hnífur) þinn í kotinu þínu, svo að þú getir skorið af mér böndin?2 Drengur kvað já við því, kom með busann og gat um síðir skorið svo böndin, að önnur höndin losnaði. Tók hún þá við busanum og skar öll bönd af sér og síðan af þeim manni er næstur var. Fékk hún síðan þeim manni busann og bað hann losa hitt fólkið, en hljóp sjálf til fjalls með Hermann litla. Slapp allt fólkið með þessum hætti. Þegar Hermann var orðinn fulltíða réðst hann á skip og var lengi í siglingum, var mælt að hann hafi síðar eignast Berunes." (Ættir Austfirðinga, 11307). Hermann Ásmundsson var fæddur árið 1623 og passar aldurinn við þjóðsöguna. Hann er fjögurra ára er Tyrkjaránið var árið 1627. Í Jarðabréfum frá 16.-17. öld (s. 280) sést að Hermann eignast tvö hundruð í Berunesi 1677, en átti jörðina alla samkvæmt bréfi dagsettu 13. júlí 1687. Hermann bjó á Berunesi þar til hann lést upp úr 1695.

Aftur í verkefnið