Aftur í verkefniðisland comics

Önnur munnmælaútgáfa

Álfheiður í Álfheiðarskúta

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

Um Álfheiðarskúta gekk önnur sögn en sú sem Sigfús þjóðsagnaritari ritar og er gaman að láta hana fylgja með. Anna Jónsdóttir sem alin var upp á Strýtu, heyrði sagt að vinnukonan Álfheiður hefði verið vanfær þegar hún lagði á flótta undan illmennunum.

Munnmælasögurnar hafa hér gert vinnukonunna frá Búlandsnesi býsna létta á sér þrátt fyrir óléttuna og hefur hún eftir þeim að dæma verið sannkölluð ofurkona. Það var stúlka sem var vanfær og hún hljóp barna upp brekkuna og komst í skútann Tyrkirnir þeir léku það ekki eftir henni. Þeir gátu ekki klifrað upp í skútann og þar ól hún tvíbura." (SÁM 90/2234).

Aftur í verkefnið