Aftur í verkefniðisland comics

Staðbundin munnmælasaga

Lúsíuhellir

Lesútgáfa aðsendstextaafrits. Augljósar afritunarvillur leiðréttar með samanburði við síðumyndir; frekari yfirferð stendur yfir.

Textastærð

„Lúsíuhellir er í fjallinu inn og upp af bænum Krossgerði á Berufjarðarströnd. Stuttur spölur er upp í hann af gamla þjóðveginum, að bæjarbaki í Krossgerði. Auðvelt er að koma auga á hellismunnann í öðru klettabelti að neðan og skammt fyrir innan Fékamb, áberandi gang neðst í hlíðinni. Nokkuð gróin stutt brekka er framundan munnanum og liggur fram á neðsta klettabeltið. Munnmæli herma að Lúsía, sem hellirinn er kenndur við, hafi verið ung stúlka í Krossgerði þegar Tyrkir rændu hér við land árið 1627. Hún komst undan þegar þeir fóru ránshendi um Berufjarðarströnd, faldi sig í hellinum og hefur haldið þar kyrru fyrir uns hættan var liðin hjá. Lúsía slapp með þessu móti við að vera færð í þrældóm suður til Algeirsborgar, en þaðan voru ræningjarnir sem landsmenn héldu ranglega vera Tyrki. Högni Albertsson er bjó á Krossi þekkti þessa munnmælasögu frá unga aldri en minnist ekki að hafa heyrt neitt frekar um Lúsíu eða örlög hennar. Þó heyrði hann sagt frá greftrunarstað Lúsíu sem átti að hafa verið fremur óvenjulegur. Högni man til þess að hafa heyrt Einar Þórarinsson Long (1855-1952) bónda á Núpi segja frá því, að eftir lát Lúsíu hafi hún verið grafin í brekkunni innan við Fékambinn ofan við Krossgerði. Ekki minntist Högni þess að sögunni hafi fylgt skýring á því hvers vegna henni var valinn þessi staður til greftrunar, en ekki fengið leg í vígðri jörð." (Magnús Stefánsson 2002:40).

Aftur í verkefnið