Komdu og búðu til myndasögu! Þessi opna vinnustofa stendur yfir allan daginn og er fyrir alla. Hvort sem sagan þín fjallar um mikilvægt málefni, tilfinningu, ástríðu eða eitthvað fáránlegt og skemmtilegt, þá er þetta vettvangurinn til að láta hana verða að veruleika.
Innblástur, leiðbeiningar og tæki til að teikna verða í boði. Þú mátt líka koma með allskonar dót. Á staðnum verða bækur og efni fyrir þá sem vilja læra sjálfir á sínum eigin hraða.
Hvað færðu að læra eða upplifa?
- Hvernig þú segir þína eigin sögu í myndasöguformi
- Tækifæri til að teikna, prófa þig áfram og skemmta þér
- Innblástur og upplýsingar fyrir ef þú hefur áhuga
Fyrir hvern?
Allir eru velkomnir. Engin þekking eða kunnátta nauðsynleg.
Þarf að koma með eitthvað?
Nei, en þú mátt það alveg. Það verða öll helstu tól á staðnum.
Hversu lengi stendur þetta?
Opin vinnustofa allan daginn, þú getur komið og farið eins og þér hentar.