Myndasögunámskeið

Búðu til þína eigin myndasögu – bókaðu okkur.

Við mætum til þín hvort sem það er skóli, félagsmiðstöð, bókasafn eða einkasamkvæmi. Við leiðum þig í gegnum ferlið og drögum fram það sem þú hefur að segja, eða eitthvað sem þú ætlaðir ekkert að fjalla um. Hvort sem sagan þín fjallar um mikilvægt málefni, tilfinningu, ástríðu eða eitthvað fáránlegt og skemmtilegt, þá er þetta vettvangurinn til að láta hana verða að veruleika.

Innblástur, leiðbeiningar og tæki til að teikna verða í boði. Þú mátt líka koma með allskonar dót. Á staðnum verða bækur og efni fyrir þá sem vilja kynna sér að læra sjálfir á sínum eigin hraða.

Hvað færðu að læra eða upplifa?

Fyrir hvern?

Allir eru velkomnir. Engin þekking eða kunnátta nauðsynleg.

Þarf að koma með eitthvað?

Nei, en þú mátt það alveg. Það verða öll helstu tól á staðnum.

Hvernig bókum við ykkur?

Sendu okkur línu á skoli@myndarsogur.is